Fjármögnun

Ráðgjafar Centra hafa áralanga reynslu í að greina hvers konar fjármögnun hentar viðskiptavinum best og hvernig best er að „strúktúrera“ slíka fjármögnun. Mjög mikil verðmæti geta falist í því fyrir eigendur að fyrirtækið sé rétt fjármagnað, út frá áhættu, tímalengd og skilmálum fjármögnunarinnar. Sem óháður ráðgjafi getur Centra greint þörf og mælt með lausnum, án þess að þurfa að taka tillit til eigin hagsmuna. Hér að neðan má sjá nokkrar algengar leiðir við fjármögnun fyrirtækja:
 

Skuldabréfaútgáfa

Centra Fyrirtækjaráðgjöf hefur öll tilskilin leyfi frá FME til að fara í skuldabréfaútboð á Íslandi fyrir viðskiptavini sína og ráðgjafar okkar búa yfir mikilli reynslu í uppbyggingu skuldabréfa út frá þörfum viðskiptavina.
 

Sérhæfðir fjárfestar (strategic)

Leit að fjárfestum sem hafa reynslu úr viðkomandi atvinnugrein og koma með aukin verðmæti eins og markaðsaðgang eða tæknilega þekkingu inn í verkefnið, auk fjárfestingarinnar sjálfrar.
 

Hlutafjáraukning

Nýtt hlutafé er oft besti kosturinn til að styrkja fjárhagslega stöðu fyrirtækis eða búa það undir framtíðarvöxt. Centra er vel í stakk búið til að finna nýja fjárfesta inn í hluthafahópinn í gegnum sterkt net fjárfesta hér á landi sem erlendis.
 

Breytanleg skuldabréf

Fjárfestir lánar fyrirtækinu í gegnum útgáfu vaxtaberandi skuldabréfs. Fjárfestirinn hefur rétt til að breyta skuldabréfinu yfir í hlutafé (að hluta eða öllu leiti) á fyrirfram ákveðnu gengi á fyrirfram ákveðnu tímabili.
 

Milliganga um fjármögnun

Ráðgjafar okkar vinna með fyrirtækinu í að greina hvers konar lánastrúktúr hentar því best og hefur síðan samband við lánastofnanir um aðkomu þeirra að slíkum lánum.